Ársfundur Svæðisnefndar EA-samtakanna á Íslandi

Ársfundur Svæðisnefndar EA-samtakanna á Íslandi

Þriðjudaginn 27.5.25. kl. 17-18.30 bjóðum við ykkur öllum að taka þátt í formlegri stofnun Svæðisnefndar EA samtakanna á Íslandi. Svæðisnefndin sér um þjónustu við EA deilir á Íslandi. Hún þjónustar heimasíðuna, heldur sambandi við alþjóðasamtök samtakanna, gefur út EA efni og er framkvæmdarafl fyrir það sem EA félagar vilja sjá gerast í samtökunum.

Allir áhugasamir eru innilega velkomnir á fundinn:

Dagskrá fundar:

  • Félagi deilir sögu sinni í 10 mín.
  • Formaður Svæðisnefndar býður alla velkomna og fer yfir sögu samtakanna á Íslandi.
  • Kveðjur frá heimsráði EA samtakanna
  • Aðalfundarstörf:
  • Skýrsla framkvæmdanefndar
  • Samþykktir EA samtakanna á Íslandi
  • Skýrsla gjaldkera
  • Hvað er næst?
  • Önnur mál

Categories


Recent Comments


No comments to show.

Tags