Fundaskrá EA

Vikulegir fundir


EMOTIONS ANONYMOUS

Tilgangur okkar


  • 12 hugtök sem er gott að þekkja
  • 12 spor Emotions Anonymous
  • 12 erfðavenjur Emotions Anonymous
  • 12 fyrirheit Emotions Anonymous
  1. Við komum í EA til að læra nýja aðferð við að lifa lífinu með stuðningi 12 spora kerfis samtakanna. Í kerfinu eru líka erfðavenjurnar tólf, hugmyndir og hugtök, æðruleysisbænin, slagorð, Aðeins í dag, EA lesefni, vikulegir fundir, persónuleg tengsl og símtöl og það að fara eftir prógramminu einn dag í einu. Við komum ekki á fundi fyrir aðra heldur til að hjálpa sjálfum okkur og deila reynslu okkar, styrk og vonum með öðrum.
  2. Við erum aðeins sérfræðingar í okkar eigin sögum, í því hvernig við reynum að lifa í samræmi við prógrammið, hvernig EA virkar í lífi okkar og hvað EA hefur gert fyrir okkur. Enginn talar fyrir EA sem heild.
  3. Við virðum nafnleynd – engra spurninga verður spurt. Okkur er sama hver þú ert og hvað þú hefur gert. Þú ert velkomin(n).
  4. Við dæmum ekki; gagnrýnum ekki og deilum ekki hvert við annað. Við gefum ekki ráð varðandi persónulega hluti eða fjölskyldumál.
  5. EA er ekki staður þar sem hægt er að fara aftur og aftur yfir það sem úrskeiðis hefur farið, heldur aðferð til að læra að slaka á tenglum okkar við það. Hluti að æðruleysi okkar á rætur í að geta lifað með óleyst vandamál.
  6. Við ræðum aldrei trúmál, stjórnmál eða alþjóðleg málefni, önnur trúarbrögð eða stefnur. EA hefur enga skoðun á því sem er fyrir utan samtökin.
  7. Emotions Anonymous er andlegt prógramm en ekki trúarlegt. Við fylgjum ekki neinu sérstöku átrúnaðarkerfi.
  8. Sporin gera ráð fyrir tiltrú á mátt sem er æðri okkur. Þetta getur verið mannlegur kærleikur, kraftur hins góða, hópurinn, náttúran, alheimurinn, Guð eða hvaða vera sem félagi kýs sér sem sinn persónulega Æðri mátt.
  9. Við notum prógrammið en skilgreinum það ekki. Skilningurinn kemur með reynslunni. Við notum einhvern hluta prógrammsins dag hvern í einkalífi okkar.
  10. Okkur hefur ekki fundist nein hjálp í að “setja merkimiða” á neitt stig veikinda eða heilbrigðis. Við getum haft ólík einkenni, en tilfinningarnar sem búa undir eru þær sömu eða svipaðar. Við komumst að því að við erum ekki ein og einstök hvað varðar erfiðleika okkar og vanlíðan.
  11. Sérhver einstaklingur á rétt á að hafa sínar eigin skoðanir og getur tjáð þær á fundum innan þeirra marka sem EA setur. Við erum öll jöfn – enginn skiptir meira máli en annar.
  12. Hluti af fegurð og undri EA prógrammsins er að á fundum getum við sagt hvað sem er og vitað að það fer ekkert lengra. Hvað sem við heyrum á fundi eða í síma eða hjá öðrum meðlimi er bundið trúnaði og á ekki að endurtaka við neinn: ekki EA félaga, maka, fölskyldu, ættinga eða vini
  1. Við fórum að trúa að máttur okkur æðri gæti gert okkur andlega heilbrigð að nýju.
  2. Við viðurkenndum vanmátt okkar gagnvart eigin tilfinningum og að við gætum ekki lengur stjórnað eigin lífi.
  3. Við tókum þá ákvörðun að fela líf okkar og vilja umsjá Guðs, samkvæmt skilningi okkar á honum.
  4. Við gerðum rækilega og óttalaust siðferðileg reikningskil í lífi okkar.
  5. Við játuðum misgörðir okkar fyrir Guði, sjálfum okkur og annarri mannesku og nákvæmlega hvað í þeim fólst.
  6. Við vorum þess albúin að láta Guð fjarlægja alla skapgerðarbrestina.
  7. Við báðum Guð í auðmýkt að losa okkur við brestina.
  8. Við skráðum misgörðir okkar gagnvart náunganum og urðum fús að bæta fyrir þær.
  9. Við bættum fyrir brot okkar milliliðalaust svo framarlega sem það særði engan.
  10. Við iðkuðum stöðuga sjálfsrannsókn og þegar út af bar viðurkenndum við yfirsjónir okkar umsvifalaust.
  11. Við leituðumst við með bæn og hugleiðslu að styrka vitundarsamband okkar við Guð, samkvæmt skilningi okkar á honum og báðum um það eitt að vita vilja hans og hafa mátt til að framkvæma hann.
  12. Við urðum fyrir andlegri vakningu er við stigum þessi spor og reyndum því að flytja öðrum þennan boðskap og fylgja þessum meginreglum í lífi okkar og starfi.
  1. Sameiginleg velferð okkar situr í fyrirrúmi. Bati hvers og eins er undir einingu EA samtakanna kominn.
  2. Í málum deilda er aðeins einn leiðtogi kærleiksríkur Guð eins og hann birtist í samvisku hvers hóps. Forsvarsmenn okkar eru þjónar sem við treystum en ekki stjórnendur.
  3. Til þess að gerast EA félagi þarf aðeins eitt; löngun til að verða tilfinningalega heilbrigður.
  4. Sérhver EA-deild á að vera sjálfstæð nema í málum er varða aðrar deildir eða EA-samtökin í heild.
  5. Sérhver deild hefur aðeins eitt meginmarkmið; að flytja boðskap sinn til einstaklinga sem þjást vegna tilfinningavandamála.
  6. EA-deild ætti aldrei að ljá öðrum samtökum eða málstað nafn sitt, fjármagn eða fylgi svo lausafé, eignir eða upphefð fjarlægi okkur ekki upphaflegum tilgangi.
  7. Sérhver EA-deild ætti að standa á eigin fótum og hafna utanaðkomandi fjárhagsaðstoð.
  8. Félagar í EA-samtökunum eru ætíð einungis áhugamenn, en þjónustustöðvar okkar mega ráða launað starfsfólk.
  9. EA-samtökin sem slík ætti aldrei að skipuleggja en við getum myndað þjónustunefndir og ráð sem eru ábyrg fyrir þeim sem þau starfa fyrir.
  10. EA-samtökin taka ekki afstöðu til annarra mál en sinna eigin. Nafni þeirra ætti því að halda utan við deilur og dægurþras.
  11. Afstaða okkar út á við byggist fyrst og fremst á aðlöðun en ekki áróðri. Í fjölmiðlum ættum við því allaf að gæta nafnleyndar.
  12. Nafnleyndin er hinn andlegi grundvöllur erfðavenja okkar og minnir okkur á að setja málefni og markmið ofar eigin hag.
Ef við höfum lagt okkur fram varðandi þetta þroskaskeið getum við átt von á að:
  1. Við upplifum nýtt frelsi og hamingju.
  2. Við grátum ekki gengna tíð og okkur langar ekki að útiloka hana.
  3. Við skiljum orðið friðsæld og öðlumst hugarró.
  4. Við skiljum hvernig reynsla okkar getur komið öðrum að gagni, sama hversu dJúpt við höfum sokkið.
  5. Okkur finnist við ekki jafn gagnslaus sjálf og vorkennum sjálfum okkur minna.
  6. Við hugsum minna um okkur sjálf og tökum meira tillit til annarra.
  7. Við látum af eigingirni.
  8. Öll okkar viðbrögð og viðhorf til lífsins breytist.
  9. Tengsl okkar við aðra verði betri.
  10. Við finnum á okkur hvernig á að takast við aðstæður sem við skildum ekkert í áður.
  11. Við öðlumst innra öryggi.
  12. Okkur verði ljóst að Guð geri fyrir okkur það sem við gátum ekki gert sjálf.
Ykkur finnst kannski of miklu lofað, en svo er ekki. Fyrirheitin rætast, fyrr eða síðar.
The sun setting through a dense forest.

    • Ársfundur Svæðisnefndar EA-samtakanna á Íslandi

      Þriðjudaginn 27.5.25. kl. 17-18.30 bjóðum við ykkur öllum að taka þátt í formlegri stofnun Svæðisnefndar EA samtakanna á Íslandi. Svæðisnefndin sér um þjónustu við EA deilir á Íslandi. Hún þjónustar heimasíðuna, heldur sambandi við alþjóðasamtök samtakanna, gefur út EA efni og er framkvæmdarafl fyrir það sem EA félagar vilja sjá gerast í samtökunum. Allir áhugasamir…